
Beta-Glucan Daily Moisture Cream - (60ml)
Vörunr. IUNIK103
Verð og pantanir eru aðeins fyrir skráða viðskiptavini.
Skráðu þig inn til að sjá verðUppselt
- Flokkur
- IUNIK
- Vörunúmer
- IUNIK103
Vörulýsing
Afritaðu lýsinguna beint í þína netverslun.
48 klst. rakagjöf • Róar viðkvæma húð • Hentar bólugjarnri húð
Beta-Glucan Daily Moisture Cream frá IUNIK er létt en öflugt rakakrem sem veitir húðinni djúpan raka í allt að 48 klukkustundir, hjálpar henni að halda í raka og styður við sterka og heilbrigða húðvörn.
Formúlan sameinar Beta-Glucan, Centella Asiatica og andoxunarríkt Red Fruits Complex til að gefa húðinni raka, róa ertingu og skilja hana eftir mjúka, fyllta og fallega ljómandi.
Létt gel-krem áferðin smýgur hratt inn án klísturs eða þungrar tilfinningar og hentar því einstaklega vel sem daglegt rakakrem – jafnvel fyrir viðkvæma og bólugjarna húð.
Af hverju við elskum það
Klínískt prófað fyrir allt að 48 klst. rakagjöf
Gefur raka bæði á yfirborði og dýpra í húðinni
Hjálpar húðinni að halda í raka og styður við húðvörnina
Hentar bólugjarnri húð
Dermatest-vottað fyrir viðkvæma húð
Róar viðkvæma, ertingargjarna og stressaða húð
Létt gel-krem sem smýgur hratt inn
Skilur húðina eftir plump, dewy & hydrated
Án 26 algengra ofnæmisvalda
Vegan & cruelty-free
Lykilinnihaldsefni
Beta-Glucan
Öflugur rakabindandi efnisþáttur unninn úr sveppum sem hjálpar húðinni að halda í raka og veitir djúpa og langvarandi rakagjöf. Beta-Glucan styður jafnframt við húðvörnina og hjálpar húðinni að viðhalda mjúku, fylltu og heilbrigðu yfirbragði.
Centella Asiatica
Þekkt fyrir róandi eiginleika sína. Hjálpar til við að róa ertingu og styður við náttúrulegt endurheimtarferli húðarinnar – sérstaklega gott fyrir viðkvæma, reactive eða stressaða húð.
Red Fruits Complex
Blanda af andoxunarríkum ávaxtaextröktum sem hjálpa til við að verja húðina gegn umhverfisálagi á sama tíma og þau styðja við raka og heilbrigðan ljóma.
48 klst. djúp rakagjöf
Beta-Glucan Daily Moisture Cream hefur verið klínískt prófað fyrir allt að 48 klukkustunda rakagjöf. Formúlan hjálpar bæði til við að auka raka húðarinnar og draga úr rakatapi svo húðin haldist mjúk, fyllt og þægileg lengur.
Hentar sérstaklega vel fyrir
Bólugjarna húð • Viðkvæma húð • Rakaskorta húð • Ertingargjarna húð • Feita og blandaða húð • Veikt húðvarnarlag • Allar húðgerðir
Áferð
Fersk og létt gel-krem áferð sem rennur mjúklega yfir húðina og smýgur hratt inn án þess að skilja eftir klístraða eða feita tilfinningu.
Húðin verður mjúk, fyllt, fersk og dewy – án þess að kremið følist þungt.
Notkun
Berið hæfilegt magn á andlit og háls sem síðasta skref í húðrútínunni. Nuddið eða klappið varlega inn í húðina þar til kremið hefur frásogast.
Notið morgna og kvölds.




