
Rice Pure Gel And Cream (80ml)
Vörunr. Thank182
Verð og pantanir eru aðeins fyrir skráða viðskiptavini.
Skráðu þig inn til að sjá verðUppselt
- Flokkur
- Thank you farmer
- Vörunúmer
- Thank182
Vörulýsing
Afritaðu lýsinguna beint í þína netverslun.
Tvær áferðir. Eitt rakakrem. Fullkomlega aðlagað að húðinni þinni.
Rice Pure Gel & Cream er einstakt 2-in-1 rakakrem sem sameinar létt og frískandi gel með ríkulegra rakakremi. Þú stjórnar einfaldlega hlutfallinu eftir því hvað húðin þín þarf hverju sinni – meiri léttleika og raka eða meiri næringu og mýkt.
Formúlan inniheldur Gyodong hrísgrjónaþykkni sem hjálpar til við að næra húðina, viðhalda raka og styðja við heilbrigðan húðbarrier. Niacinamide hjálpar til við að jafna ásýnd húðarinnar og gefa henni fallegan ljóma, á meðan Centella Asiatica, hyaluronic acid og ceramides róa, gefa raka og styðja við húðbarrierinn.
Af hverju við elskum það ♡
Tvær áferðir sem hægt er að blanda eftir þörfum húðarinnar
Gefur húðinni djúpan og langvarandi raka
Hjálpar til við að styrkja og vernda húðbarrierinn
Róar og mýkir húðina
Gefur ferska, mjúka og ljómandi áferð
Án viðbætts ilms
Hentar öllum húðgerðum
Veldu rakann eftir húðinni þinni
2 hlutar gel + 1 hluti krem
Léttari og frískandi raki. Fullkomið á morgnana, yfir hlýrri mánuðina eða þegar húðin þarfnast róandi raka án þess að verða þung.
1 hluti gel + 2 hlutar krem
Ríkulegri næring og meiri raki. Fullkomið á kvöldin, yfir kaldari mánuðina eða þegar húðin er sérstaklega þurr og þarfnast aukinnar mýktar.
Notkun
Berið á hreina húð eftir toner og serum. Blandið gelinu og kreminu saman með spaðanum í því hlutfalli sem hentar húðinni hverju sinni og berið yfir andlit og háls. Notist bæði kvölds og morgna. Ljúkið morgunrútínunni með sólarvörn.







