Reykjavik Warehouse
Rice Pure Barrier Capsule Cream

Rice Pure Barrier Capsule Cream

Vörunr. Thank210

HeildsöluverðVerð er falið þar til þú skráir þig inn

Verð og pantanir eru aðeins fyrir skráða viðskiptavini.

Skráðu þig inn til að sjá verð

Uppselt

Flokkur
Thank you farmer
Vörunúmer
Thank210

Vörulýsing

Afritaðu lýsinguna beint í þína netverslun.

Ríkulegt en silkimjúkt rakakrem með ceramide-hylkjum sem bráðna inn í húðina — fyrir sterkari húðvarnir, djúpan raka og mjúka, ljómandi húð.

Rice Pure Barrier Capsule Cream er sérstaklega hannað til að styrkja og vernda náttúrulegar húðvarnir, róa húðina og hjálpa henni að halda raka. Kremið er því einstaklega gott þegar húðin er þurr, viðkvæm, ert eða einfaldlega þarfnast smá extra TLC.

Formúlan sameinar kóreskan hrísgrjónaþykkni, ceramides, panthenol og niacinamide sem vinna saman að því að næra húðina, róa hana og gefa henni bjartara og heilbrigðara yfirbragð. Sérstök Ceramide Capsule Technologyinniheldur örsmá ceramide-hylki sem bráðna inn í húðina við notkun og hjálpa til við að mynda létta, verndandi rakahulu.

Kremið inniheldur einnig meðal annars hyaluronic acid, centella asiatica og peptíð, sem gera formúluna að algjöru rakaboosti fyrir húðina. Það er án ilmefna, vegan-vottað og húðlæknaprófað.

Af hverju við elskum það

Styrkir náttúrulegar húðvarnir

Gefur djúpan og langvarandi raka

Ceramide-hylki bráðna inn í húðina

Panthenol hjálpar til við að róa og mýkja

Niacinamide styður við jafnara og bjartara yfirbragð

Inniheldur hrísgrjónaþykkni, hyaluronic acid og peptíð

Sérlega gott fyrir þurra, viðkvæma eða ertaða húð

Án ilmefna

Hentar öllum húðgerðum

Má nota bæði kvölds og morgna

Notkun:
Berið kremið á hreina húð eftir toner og/eða serum. Nuddið varlega yfir andlit og háls þar til ceramide-hylkin hafa bráðnað inn í húðina. Notið morgna og/eða kvölds. Ef kremið er notað að morgni skal klára rútínuna með sólarvörn.

Þú gætir líka viljað

Tengdar vörur